3.4.2008 | 12:15
Blogg
Góðan dag?
Spurning hvort að maður ætti að taka lyklaborðið af hillunni og byrja að blogga aftur....
Kv. TRS
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2008 | 03:49
Nýjar Myndir
Náði að koma myndunum frá Karókíkvöldinu inn að lokum, eða svona flestum.
Hér er sýnishorn af því sem þar er hægt að sjá en þetta var um kl 2. eftir miðnætti þar sem Ragga og Steina fannst vera kominn tími til að kúra sig saman á miðju gólfinu á kaffihúsinu.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2008 | 02:19
Karíókíkvöld á Bifröst
Heimsborgarinn hélt vökulu auga yfir Bifrestingum í gærkvöldi er nemendur gengu berserksgang á karókíkvöldi. Gjálifnaður var í hámarki er nemendur biðu syndinni í heimsókn og tóku trylltan dans við hávært karókíöskur, þar fór Kristján Hlynur hamförum og vann þá keppni sannfærandi. Sjálfur hélt ég ró minni og fékk mér par af gini í tonic í nokkur skipti, brá mér í sparigallann og skellti myndavélinni framan á mig og hélt út á lífið vongóður og hress. Það var ekki að sökum að spyrja er nemendur sáu glansandi hressan myndavélarkappann og þar var líkt og dýrseðli brytist út. Grettur á hverju horni og klám í hverju sundi, fólk lagðist í gólfið og stóð uppi á stólum, fólk strípaði, sleikti gler, tók niður myndir af veggjum og hluti þaðan af verri.
Ég ætlaði samt að setja þessar myndir inn hjá mér en það er eitthvað ekki að ganga og af þeim 230 myndum sem ég tók hef ég komið inn 48 myndum, vonandi næ ég að koma restinni inn um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2007 | 12:02
Heim kominn á klakann - Megaofurfærsla!
Jaja þá er ég kominn heim frá erlöndum eftir langa fjarveru. Eldri, bættari, betri maður - reynslunni ríkari með hausinn fullann af hugmyndum um hvernig hlutirnir eiga að vera. Sjáum framá breytingar í Íslensku samfélagi á næstu árum þar sem fyrirtæki okkar Svenna mun valda byltingu á öllum sviðum mannlífs: við munum heimsborgaravæða Ísland. Íslendingar munu læra að ganga og tala rétt, læra að meta hin smávægilegustu lífsgildi til hærri meta sem mun færa tilbreytingarsnautt og grámyglulegt líf þeirra á hærra og litríkara plan. Meðal Íslendingur mun læra að þekkja bókmenntir og vita hvert skal halda þegar hann fer til Útlanda; ekki bara fara þangað sem ferðaskrifstofan segir honum að fara. Sjálfstæð hugsun. Hann mun læra að drekka rauðvín og spýta því út aftur sé það honum ekki samboðið. Hann mun læra að klæða hunda í föt og hvernig maður á að ganga við staf, setja á sig hatt og segja fyndna hluti um þá sem minna mega sín svo dæmi séu tekin af þeim fjölda hluta sem viðkomandi þarf að læra til þess að komast í klúbbinn Heimsborgari á Íslandi (var stofnsettur fyrir skömmu). Við erum þegar búnir að hrinda þessu af stað og núna eru 100 sér-hand-valdir Íslendingar í Heimsborgaraprógrammi Svenna og Tryggva þar sem þeir læra að verða alvöru heimsborgarar á Íslandi. Hægt er að sækja um hér eða með því að hringja í okkur.
Og munið bara að lífið á að þjóna þér, þú átt ekki að þjóna lífinu! Lifið heil og eigið góðan dag.
......
Ísland - Keflavík
Danmörk - Köpen - Óðinsvé
Sviss - Basel - Zürich
Ítalía - Róm - Tríeste
Þýskaland - Munchen - Berlín - Karlsruhe
Frakkland - Strassbourg - Nice - Frejus - París
Belgía - Brussel - Andwerpen
Holland - Rosendhal - Amsterdam
Tékkland - Prag
Slóvakía - Bukarest
Ungverjaland - Budapest - Vínsmökkunarekra í einhverri sveit
Króatía - Zagreb
Slóvenía - Ljubljana - o.m.fl.
Austurríki - Wien
Serbía - Belgrad
England - London
Ísland - Keflavík- Reykjavík - Höfn - Svo er það eftir áramót: Akureyri - Bifröst
- Allir þessir staðir eiga það sameiginlegt að með því fyrsta sem við sáum þegar við komum þangað var McDonalds!
- Frakkland er ekki málið, þessir rauðvínsspýtandi dekurmömmudrengir eru ekki að gera það fyrir mig. Það þarf að senda þetta fólk í skóla og kenna því ensku og fá það til að borða almennilegan mat, fólk þarna er grindhorað og næringarlaust af froskaáti og rauðvínsdrykkju - Einkunn 3 af 10.
- Slóvenía er frábært land og ég mæli með því fyrir alla að fara þangað í heimsókn að sumri til. Það er stutt í allt þarna og góðar lestarsamgöngur til og frá Ljubljana. Hálfgerð tenging frá vesturs til austurs. Getur farið til Makedóníu eða Sviss og allt þar á milli.
- Maður þarf stundum að anda rólega því fólk á þessu svæði er mjög rólegt, labbar hægt, vinnur hægt og gerir almennt allt hægar en meðal íslendingur. Ef það eru 3 fyrir framan þig í biðröð í búð þá þýðir það t.d. 20 mín bið eftir afgreiðslu, ef það er ekki með mikið af dóti.
- Sebía er skítug og fátæk - Sá fólk búa á ruslahaugum.
- Serbía er miðpunktur alheimsins að þeirra mati.
- Ég er viss um að konungsríki Serba á eftir að rísa upp að nýju, ef þeir sjá tækifæri á því er ég nokkuð viss um að þeir reyna að grípa það. Þeir lifa á minningunni um The Great Serbian Kingdome, mjög fyndið en þetta er ein stór nostalgía hjá þeim blessuðum. Svo er búið að taka og sundurlima Serbíu og milljón parta sem hefur valdið því að Serbar eiga minnihlutahópa um allar trissur.
- Stefnir margt í að aftur brjótist út stríð þar sem Kósavó ætlar að lýsa yfir sjálfstæði frá Serbíu. Serbar hafa lýst því yfir að það sé ekki þeirra vilji þar sem það myndi valda því að stór minnihlutahópur myndi innlimast í Kósavó. Serbar eru einnig hræddir um að Kósavó sameinist seinna Albaníu, þeir hafa einni lýst því yfir að þeir eru óhræddir við að nota hernaðarmátt sinn til þess að vernda þennan minnihluta (hvað sem það þýðir). Auðvitað þurfa USA að skipta sér af og þeir hafa lýst yfir eindregnum stuðningi við að Kósavó fá sjálfstæði. Það ætti að styrkja Kósavó í baráttunni við Serba sem aftur getur leitt til þess að stríð brjótist út.
- Förum á Bifröst 7. janúar, sama dag og skólinn byrjar.
- Manchester United komnir á toppinn í ensku úrvalsdeildinni, það er reyndar umferð í dag sem getur breytt því svo þetta er spennandi toppbarátta.
- Það er ekki McDonalds í Líbíu þar sem Gadaffi er á móti allri "USA væðingu".
Með virktum,
Tryggvi Rafn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.12.2007 | 13:59
Hundingjar, prestar og jólasveinar
Það er ljóst að áhugamál fólks í þessu landi eru tveir hlutir, annað eru spilavíti en hitt, öllu vera, er hundahald. Hversu lengi á að ganga yfirmann hérna með skítuga sóla? Ríkisstjórnin með sína múgsefjun, ef þú ert fátækur fáðu þér bara hund, svo er þetta gefið inni á stofnunum, í búðum og út um allt, vitfyrra segi ég! Svo eiga allir 3-4 hunda sem þeir valsa um borgina með í bandi skítandi og geltandi út um allt, bítandi og klórandi, mýgandi í öll horn og skúmaskot. Það sem verra er þá verða blessuð dýrin þunglynd af þessu, hundur í borg er eins og ef Hannes Hólmsteinn yrði látin kjósa Vinstri ræna og róma sósíalisma. Þetta er ónáttúrulegt fyrirbæri sem fjandanum sjálfum blöskrar yfir. Það er bannað að reykja á á opinberum stöðum; á kaffihúsum, skemmtistöðum o.s.fr. sem er gott og blessað en fjandakornið er ekki hægt að banna hundahald í leiðinni. Fólk situr og borðar matinn sinn eða drekkur te og fær 3 hundaskálar með fyrir hundana sína sem liggja undir borðum og upp á stólum og út um allt. Blautir með kúkaklepra og mæðulegan þunglyndissvip eldriborgara á leiðinni inná Hrafnistu. Ég segi þetta enn og aftur, hundar eiga heima í sveit, fólk á heima í borgum og kettir eru í eðli sínu menn þannig að þeir mega svosem búa í borgum líka. Það er nú reyndar fyrirbæra útaf fyrri sig, fólk sem fer út að labba með kisurnar sínar í bandi, en inná slíkar slóðir ætla ég ekki að hætta mér.
...
Ljubljana er borg með ca. 270.000 íbúa og 80.000 háskólanema, borgin á veturna er ein stór vist. Á deildinni minni eru bara 4.000 nemendur og það er búið að koma okkur fyrir á stofnun sem nefnist háskóli, kuldaleg bygging með gráar flísar og hörðum trébekkjum. Maður fær á tilfinninguna að hér sé verið að steypa fólk í mót, eftir hugmyndafræði stjórnamálana og kirkjunnar. ,,Leiðin að sannleikanum er í gegnum kirkjuna og trúna", menntun hefur mátt til að snúa á slíkar kennisetningar og það veit hún bersýnilega því hún hefur smyglað sínum Kristsofstækis morðingja fingrum inn fyrir dyr háskólans til þess að veikja mátt þann sem menntun gefur. það voru mótmæli í skólanum í dag ásamt undirskriftalista nemenda auk þess sem ýmsir kennarar mótmæltu. Kirkjan og ríkið eru að krefjast aukins valds innan háskólans. Þetta er að ganga af mér dauðum að vera á slíku vistheimili,þetta gæti allt eins verið Litla Hraun, vantar bara rimlana til að umlykja mann í stað áróðurs ríkisins. Það er eins gott að ég klára skólann í næstu viku annars fer ég bráðlega að trúa þessu, að þetta sé málið að skóli eigi að vera stofnun sem móti mig í form og sendi mig út í samfélagið tilbúinn að taka á mig skuldir og taka öllum þeim hlekkjum sem samfélagið hefur upp á að bjóða. Það verður gott að koma heim og anda að sér fersku sveitasælunni og fara í íslenskan háskóla, fyrirbæri sem íslenska ríkið hefur enn ekki áttað sig á hvað er, nema jú auðvitað HÍ sem er líka stofnun sambærileg þessari hérna. Það sagði reyndar einhver við mig að svona væru bara háskólar, allir nema Bifröst sem er aðeins persónulegri. Ef svo er þá er ég hættur við framhaldsnám og ætla að skrá mig í hjálparstarf kirkjunnar eða gerast einhverskonar sendiboði.
...
Þegar ég var yngri langaði mig alltaf að verða prestur og ég hugsaði mikið um þetta. Bæði prestar og jólasveina eru störf sem ég hugsaði mikið um á mínum yngri árum. Það eru voðalega fáir karlmenn sem fá að klæðast kjólum og er svo er þeim afhent fullt af óhörðnuðum unglingum til þess að kenna lexíu, fermingarfræðsla er eitthvað sem mér finnst eitthvað óhugnalegt við, ég velti því alltaf fyrir mér þegar ég hugsa um þetta hvort þessi stóri kjóll sem presturinn gengur í sér til þess að fela eitthvað, er hann með eitthvað þarna undir, en þetta er náttúrulega ekki rétt og slíkar hugsanir á maður ekki að láta í ljós þannig að þið megið hunsa þetta hjá mér. Annars er þetta með jólasveinana líka svo lítið undarlegt. Krakkarnir setja skónna sína út í glugga og bíða eftir því að kvennmannslaus og grímuklæddur karlmaður skríði inn um gluggann hjá þeim til að lauma að þeim súkkulaði eða einhverjum smágjöfum. Allavega var mín upplifum af þessum mönnum þegar ég var yngri með þeim hætti að ég var ekkert viss um hvort að ég vildi hitta þá, dró yfirleitt sængina alveg upp fyrir haus í von og óvon um hvort grímuklæddi maðurinn, sem bar yfirleitt nafn sem benti til þjófnaðar eða græðgi, myndi nokkuð gá hvort ég væri þægur eða óþægur.
...
Það er allavega brjálað að gera þessa dagana í að klára önnina með broskalli á einkunnarspjaldinu svo ég komi nú heim með þessara 15 einingar sem ég þarf. Farin að læra,
Kveðja Tryggvi Rafn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
1.12.2007 | 17:01
Helvítis gestagangur!
Þá er tími til kominn fyrir mig að skrifa eitthvað merkilegt fyrir ykkur til að lesa til að kæta ykkur og færa ykkur hamingju. Ég ætla bara að renna lauslega yfir atburði síðustu vikna. Er í Prag þessa stundina.
Mamma kom í heimsókn og fór eins og stormur um Ljubljana, tók báða meðleigjendur mína í stífa drykkjumeðferð og drakk þau undir borðið. Hún færði okkur sveitarómantíkina frá íslandi beint á borð með hákarl og íslenskt brennivín fremst í flokki. Hún verslaði af sér allt vit en fór ekki í kastala og var ekki mikið fyrir að baða sig í síkinu. Þá tókum við bílaleigubíl og renndum í einum grænum svífandi hvelli frá Slóveníu og niður að Adríahafi þar sem land Ítalanna er, fórum til Tríeste. Ég segi það enn og aftur að það er helvítis míta, múgsefjun og hjarðhegðun alls heimsins að Ítalir kunni að elda því verri mat en þar hef ég ekki fengið á minni löngu lífsleið og til að styrkja sjálfan mig í trúnni þá var þetta í þriðja skipti sem ég fer þangað. Annars var Tríeste fín nema að það var myrkur og frost og hvínandi rok á þessu skeri og útnára Balkanskaga. Eftir að hafa fengið vondan mat, villst, lent í umferðargeðveiki og skoðað flottasta torg í heimi héldum við heim, svöng þreytt og köld.
Mamma stakk svo af með fulla ferðtösku af fötum og listamanna hlutum. Takk fyrri góða helgi mamma.
Sama dag og mamma fór kom Örn "special" K. í heimsókn og heimtaði fjör og stuð. Ég orðinn dauðþreyttur á helvítis gestagangi setti á mig heimsborgara inniskónna og tók hann í hringferð um Ljubljana, sýndi honum síkið og kastalann og gaf honum kaffi. Um kvöldið tókum við það rólegt þangað til klukkan var 2 þá fór ég að sofa, en Örn fór eitthvað á skrall og það ríkir ennþá mikil óvissa um ferðir hans þessa nótt en hann hefur sennilega fengið sér búrek og farið svo á kvennafar. Hvað sem því líður kom kappinn heim snemma morguns, mjög andríkur, hálfpartinn ljóðrænn það var líkt og hann hefði verið í selskap Guðanna alla nóttina. Svo var hann blautur, það var eins og Bakkus sjálfur hafði afvegaleitt hann vikum sama, dregið hann um sveitir landsins og gefið honum að drekka af spena Heiðrúnar tímunum saman. Örn sjálfur sagði að óminnishegrinn hefði ráðist á hann og þóttist ekkert vita.
Örn kom svo með mér til Prag, ég að hitta Siggu mína en hann að hitta örlögin. Ég hafði nefnilega tjáð erni að hér væru kvennakostir miklir, góðar í holdum og heppilegar til barnseignar. Honum þótti þetta afbragð, fór og rakaði sig og við fórum að skoða Prag. Mitt fyrsta verk hér í Prag þegar ég er með gesti er að sjá hvort að þeir verði ekki örugglega rændir. Ég fór því með hann á alla helstu vasaþjófa og ræningja staði í Prag en allt kom nú fyrir ekki og enginn hafði fyrir því að ræna hann. Örn fór svo svekktur frá Prag, kvennamannslaus og ósáttur með borgina.
Allavega þá er ég að fara til Bosníu á fimmtudaginn eftir viku og þeir sem vilja kveðja mig, því það er nú ekki víst að maður komi þaðan aftur, geta "commentað" hér. Mjög vinsælt að ræna ungum drengjum og skella þeim í hersveitir í skóglendinu þarna á Balkanskaga. En sjáum til hvað gerist.
Kveðja Tryggvi Rafn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.11.2007 | 12:55
Afmælis Ási
Ásgeir Haukur á afmæli í dag og er orðinn 24 ára gamall. Til hamingju með það vinur og hafðu það gott. Örn biður líka að heilsa.
Kveðja Tryggvi Rafn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.11.2007 | 23:07
GYLFAGINNING
Gylfi konungur réð þar löndum er nú heitir Svíþjóð. Frá honum er það sagt að hann gaf einni farandi konu að launum skemmtunar sinnar eitt plógsland í ríki sínu það er fjórir öxn drægi upp dag og nótt. En sú kona var ein af ása ætt, hún er nefnd Gefjun. Hún tók fjóra öxn norðan úr Jötunheimum, en það voru synir jötuns og hennar, og setti þá fyrir plóg. En plógurinn gekk svo hart og djúpt að upp leysti landið, og drógu öxnirnir það land út á hafið og vestur og námu staðar í sundi nokkru. Þar setti Gefjun landið og gaf nafn og kallaði Selund. Og þar sem landið hafði upp gengið var þar eftir vatn. Það er nú Lögurinn kallaður í Svíþjóð, og liggja svo víkur í Leginum sem nes í Selundi. Svo segir Bragi skáld gamli:
- Gefjun dró frá Gylfa
- glöð djúpröðul óðla,
- svo að af rennirauknum
- rauk, Danmarkar auka;
- báru öxn og átta
- ennitungl þar er gengu
- fyrir vineyjar víðri
- valrauf, fjögur höfuð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2007 | 00:37
Ísland, já takk!
Malt
Hákall
Íslenskt brennivin
Flatkökur
Grafin Lax
Graflax sósa
Lambalæri
Hangikjöt
Grænar baunir
Lifrapylsa
Blóðmör
... og örugglega eitthvað sem ég er að gleyma....
en ..Íslenskt, JÁ takk.
Mamma í heimsókn og færði stráknum úrval als hins besta úr Íslenskri sveitasælu! Vil þakka henni fyrir fræbæra veislu og alltaf gaman að fá mömmu sína að heimsækja sig. Góða nótt.
Með virktum, Tryggvi Hrafn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2007 | 13:28
Lögregluríkið Slóvenía
Þá er það orðið nokkuð ljóst að Slóvenía er ríki hlýðni og virðingu borgara gagnvart lög og reglu. Hér er fer allt fram með löglegum hætti og það ríkir stálagi yfirvaldsins yfir þegnunum sem ganga um beinir í baki, þægir með virðingarglampa í augum fyrir þeim sem stjórna.
Fyrst þegar ég kom tók ég eftir því hvað allt var slétt og fellt, snyrtilegt og fallegt. Ekkert rusl á götunum, engir betlarar, engir glæpir og siðferði fólks almennt á háum staðli. Hvergi var ofbeldi að sjá og hér eru, ólíkt því sem gerist í flestum löndum í Evrópu, engir vasaþjófar. Fólk þorir ekki einu sinni að klæða sig í ljót föt því það virðist vera til refsing fyrir öllum sköpuðum hlut hér. Það er til dæmis við því há sekt að ganga yfir á rauðu ljósi, og ekki bara þannig að ef löggan sér þig gera það og ef hún nennir að sekta þig, nei, það er sérstök ganga-yfir-á-rauðuljósi-blönduós-vakt-lögga sem situr fyrir fólk. Hún felur sig á bakvið ljósastaurum eða bílum og stekkur fram þegar óvitar brjóta þessi virðulegu lög. Ég hef orðið vitni að þessu nokkrum sinnum og ég verð að segja að þetta minnir á falda myndavél þegar þeir sekta fólk fyrir þetta. Kristján Hlynur gerðist svo djarfur einu sinni að ganga yfir þar sem ekki var gangbraut á fylleríi í sömu andrá og löggumann keyrði framhjá, þeir handtóku hann á staðnum og voru að fara svipta hann ríkisborgara rétti þegar hann sagðist vera Íslendingur og þar gerðum við þetta "al the time" en hann fékk bara þau svör " YOU ARE NOT IN ICELAND NOW BOY" og þá var Kristján farinn að óttast um líf sitt. En þessir vinalegu löggumenn slepptu honum eftir að hann var búinn að gefa loforð um að gera þetta aldrei aftur.
Það er bannað að bannað að drekka á almanna færi, það er bannað að reykja á almannafæri og almennt er allt skemmtilegt bannað. Bannað að stela fánum eða keilum, má ekki pissa á almanna færi eða henda rusli á götuna. Það er bannað að synda í síkinu og það er bannað að fara með tóman bjórkassa í strætó. Fyrir nokkru voru sett á lög sem heita "Lög um almennt siðferði borgara". Þetta eru stórmerkileg lög sem segja til um réttlætiskennd og siðferði fólks. Ef ég sem borgari sé til dæmis einstakling leggja bíl á gangstétt, get ég ráðið því hvort þetta tiltekna athæfi sé ólöglegt eða ekki. Ef ég kvarta yfir þessu og hringi á löggumann þá fær viðkomandi sekt. Svo framalega sem ég eða einhver annar kvarta ekki, er athæfið löglegt. Reyndar átti sér stað atvik hér í Ljubljana fyrir ári síðan sem tengist þessum lögum. Það fóru fram hópmótmæli gegn sígauna fjölskyldu, löggan kom á staðinn og vegna þess siðferðis- og réttlætiskennt þeirra sem mótmæltu var svo mikil tók lögreglan þá ákvörðun að fjarlægja sígaunafjölskylduna og ekki nóg með það þá var hún svipt ríkisborgararétti og gerð landlaus. Þetta er alveg þrælskemmtilegt og frábært!
En svo til að toppa alla þessa snilld sem á sér hér í þessu landi þá er hérna GO-KART bar. Þetta er semsagt bar þar sem eru sófar, biljarðborð, fúsball, pílukast og eitthvað fleira skemmtilegt. Svo er risa stór GO-KART braut inni á barnum, hún er reyndar aðskilin með risastórri rúðu til að bensín komi ekki inn á barinn sjálfan. Þannig getur maður fengið sér fimmfaldan vodka í vatn, nokkra bjóra og svo lykla og hjálm. Svo fer maður og keyrir rallý blindfullur. Þetta er með því skemmtilegra sem ég hef séð.
Kveðja Tryggvi Rafn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 8851
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

pallkvaran
ragnarludvik
praha





